Tíðindi

Skyndiverkfall flugumferðarstjóra á Spáni

  04/12/2010september 29th, 2014No Comments

Spænskir flugumferðarstjórar settu allt á annan endann í morgun þegar þeir fóru fyrirvaralaust í skyndiverkfall en það skapaði öngþveiti á velflestum flugvöllum Evrópu og hundruð þúsunda ferðalanga komust ekki lönd né strönd.

Engin viðvörun var gefin fyrr en flugumferðarstjórarnir löbbuðu út í morgun en þeir eru að mótmæla nýjum reglum sem lágmarka yfirvinnustundir þeirra. Eru þeir þó nú þegar þeir hæst launuðustu í þessum bransa í allri Evrópu.

Gerðist þetta svo skyndilega að vélar voru í röðum úti á flugvellinum tilbúnar í flugtak þegar farþegum var tilkynnt að allir yrðu sendir á ný inn í flugstöð.

Ekki er vitað til að íslensku flugfélögin eða farþegar hafi orðið fyrir töfum vegna þessa.