Hinir árlegu jólatónleikar drengjakórsins frá Vín fara fram í Carnegie höllinni í New York þennan dag. Hefur verið svo mikil ánægja með kórinn og viðburðinn að hann þykir ómissandi hjá tónelskum jólaunnendum í borginni.
Varla er til frábærari viðburður sé fólk á ferðinni í Stóra eplinu og miða er víst hægt að fá svo lengi sem fyrirvarinn er nokkur.
Töluvert ódýrara er að fara á þennan viðburð en til dæmis Frostrósir hérlendis. Miðaverð er frá 1.500 krónum fyrir ódýrustu sætin og upp í 9.000 fyrir þau dýrustu. En hraða skal hafa á.
Heimasíða Carnegie og miðasala hér.



