Flugfélagið Icelandair er á lokametrunum hvað varðar uppgjör við þá fjölmörgu ferðalanga sem urðu strandaglópar til skemmri eða lengri tíma vegna eldgosanna í Eyjafjallajökli. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður flugfélagsins vegna bótagreiðslna verði kringum 30 milljónir króna.
Fóru um eitt þúsund farþegar fram á bætur vegna truflana á ferðum þennan tíma og segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, við Fararheill að fyrirtækið muni ljúka því að gera upp við allra síðustu farþegana fyrir áramótin.
Hefur verkið reynst flókið og mikil vinna farið í það enda aðstæður hvers farþega ólíkar og tíma hefur tekið að leysa úr hverju einasta máli.
Eins og Fararheill hefur greint frá hefur Iceland Express ekki látið neitt uppi um sínar efndir gagnvart farþegum sem urðu fyrir töfum og tjóni í vor.






