Blankheit virðast ætla að letja töluverðan fjölda Íslendinga til ferðalaga þennan veturinn ef marka má fyrstu vefkönnun Fararheill.is. Segja 53 prósent svarenda að tómt veski sé ástæða þess að ekkert verður farið erlendis í vetur.
Nokkru færri, 42 prósent, segja það ekki vandamál og ætla að ferðast hvað sem tautar og raular. Fimm prósent eru ekki viss um ferðalög í vetur.
Vill ritstjórn Fararheill.is þakka lesendum kærlega fyrir þáttökuna en 522 tóku þátt í þessari fyrstu vefkönnun okkar.






