Heimssýningunni í Shangai í Kína er nú formlega lokið og með 73 milljónir gesta tókst Kínverjum að hnekkja aðsóknarmetinu en 73 milljónir fólks heimsóttu sýninguna að þessu sinni. Eru það tíu milljónir fleiri en sóttu sýninguna í Osaka í Japan árið 1970 sem átti fyrra aðsóknarmet.
Eru skipuleggjendur afskaplega ánægðir og hafa þungavinnutækin þegar hafist handa við að brjóta niður þann hluta sýningarinnar sem ekki verður í Shanghai til frambúðar. Á það við um velflesta skálanna á svæðinu en 189 þjóðir heims kynntu þar hefðir sína, menningu og vörur.
Segja kínverskir miðlar frá því að 370 þúsund manns hafi sótt sýninguna hvern einasta dag hennar en Expo stóð yfir í 184 daga. Aðsóknarmet var sett þann 16. október síðastliðinn þegar 1,07 milljón manna sáu ástæðu til að líta við.
Næsta Heimssýning er fyrirhuguð árið 2012 í borginni Yeosu í S.Kóreu. Sjá hér.






