Tíðindi

Tafir eru venja fremur en undantekning hjá Iceland Express

  02/11/2010maí 31st, 2014No Comments

Hvað svo sem forsvarsmönnum flugfélagsins Iceland Express finnst um afhjúpun ritstjórnar Fararheill.is á því að óvíða í flugheimum séu tafir meiri en hjá hinu íslenska flugfélagi þykir ritstjórn nú sannað að sú umfjöllun var kórrétt.

Ritstjórn hefur um vikutíma haldið utan um lendingartíma flugfélagsins á Keflavíkurflugvelli og líkt og erlenda tölfræðin sýnir fram á er það veruleg undantekning ef vélar félagsins lenda þar á réttum tíma frekar en erlendis. Sýnir þessi viku stikkprufa að aðeins þrívegis í alls 21 flugi félagsins náðist að lenda á innan við tíu mínútum frá áætlun. Tafir eru því venjan en ekki undantekning hjá flugfélaginu þó öðru sé haldið fram.

Lendingartölfræði Iceland Express í Keflavík eftirfarandi síðustu vikuna:

27. október

AEU362 Oslo Gardermoen. Áætlun 19:15  –  Lending 22:42   –  Töf: 3 klst. og 27 mínútur
AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50 –  Lending 14:20  –  Töf: 30 mínútur

28. október

AEU834 Tenerife Sur. Áætlun  00:50  –  Lending 01:46  –  Töf: 56 mínútur
AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50  –  Lending 13:55  –  Töf: 5 mínútur
AEU902 Copenhagen. Áætlun 14:10  –  Lending 14:35  –  Töf 25 mínútur

29. október

AEU184 Alicante. Áætlun 01:00  –  Lending 01:03  –  Töf: 3 mínútur
AEU414 New York Newark Liberty Intl. Áætlun 05:50  –  Lending 06:01  –  Töf: 11 mínútur
AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50  –  Lending 14:48  –  Töf: 58 mínútur
AEU902 Copenhagen. Áætlun 14:10  –  Lending 14:35  –  Töf: 25 mínútur
AEU154 London Stansted. Áætlun 22:25  –  Lending 22:40  –  Töf 15 mínútur
AEU134 Berlin Schoenefeld. Áætlun 22:25  –  Lending 23:28  –  Töf: 1 klst. og 3 mínútur

30. október

AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50  –  Lending 13:57  –  Töf: 7 mínútur
AEU278 Warsaw. Áætlun 15:40  –  Lending 16:26  –  Töf: 46 mínútur

31. október

AEU504 London Gatwick. Áætlun 22:25  –  Lending 22:44  –  Töf: 19 mínútur
AEU904 Copenhagen. Áætlun 22:50  –  Lending 23:42  –  Töf: 52 mínútur

1. nóvember

AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50  –  Lending 14:20  –  Töf: 30 mínútur
AEU902 Copenhagen. Áætlun 14:10  –  Lending 14:30  –  Töf: 20 mínútur
AEU134 Berlin Schoenefeld. Áætlun 22:25  –  Lending 23:00  –  Töf: 35 mínútur

2. nóvember

AEU414 New York Newark Liberty Intl. Áætlun 05:00  –  Lending 06:50  –  Töf: 1 klst. og 50 mínútur
AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50  –  Lending 14:58  –  Töf: 1 klst. og 6 mínútur
AEU902 Copenhagen. Áætlun 14:10  –  Lending 15:15  –  Töf: 1 klst. og 5 mínútur