Fjórða hraðtilboð Icelandair í röð hefur litið dagsins ljós en þar er um að ræða tilboðsverð á ferðum til New York eftir áramótin. Fæst flugið aðra leiðina á 25.900 og báðar leiðir á 47.200 krónur.
Er þetta virkilega gott tilboð enda hefðbundið fargjald vart undir 85 þúsund krónum öllu jöfnu.
Eini mínusinn við þetta ágæta tilboð er ferðatíminn sem er frá 10. janúar til 31. mars en þá blæs Kári yfirleitt duglega í New York og því öllu leiðinlegra að dúllast milli verslana, veitingahúsa eða leikhúsa.
Heimasíða Icelandair hér.






