Tíðindi

Þriðja hraðtilboð Icelandair í röð

  19/10/2010júní 1st, 2014No Comments

Allt er þegar þrennt er segir máltækið. Kannski þess vegna býður Icelandair nú þriðja hraðtilboð sitt í röð og að þessu sinni til Boston í Bandaríkjunum.

Prísinn aðra leið 25.900 og báðar leiðir 47.200. Er það rúmlega 30 þúsund króna afsláttur af hefðbundum fargjöldum til borgarinnar.

Sem önnur sólarhringstilboð Icelandair gildir þetta í sólarhring til miðnættis 20. október og verður því að hafa hraðar hendur. Er reyndar sá galli á tilboði Njarðar að ferðatímabil er frá 10. janúar til 15. apríl eða einmitt þegar kuldi og blástur og snjór sveipa borgina misheillandi svipbrigðum.

Heimasíða Icelandair hér.