Tíðindi

Vegabréfsáritun til Rússlands senn óþörf

  19/10/2010júní 1st, 2014No Comments

Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, segir unnið að því í rússnesku stjórnsýslunni að nema úr gildi kröfur um að Evrópubúar þurfi vegabréfsáritun til landsins. Er um töluverð tíðind að ræða enda þekkja þeir það af eigin raun sem sótt hafa Rússland heim síðustu árin að bið á landamærastöðvum Rússlands er síst minni en hún var þegar Sovét var og hét.

Lét Medvedev að þessu liggja á blaðamannafundi í dag en hann er í heimsókn í Frakklandi og mun þar eiga viðræður við bæði kanslara Þýskalands og forseta Frakklands.

Að fá vegabréfsáritun til Rússlands hérlendis hefur tekið frá tveimur vikum og upp í þrjá mánuði síðustu árin og fyrir kemur að umsókn um slíkt er hafnað án þess að nánari skýringar fáist.