Tíðindi

Hörmuleg frammistaða Iceland Express

  14/10/2010maí 31st, 2014No Comments

Hverjir aðrir en Íslendingar myndu ferðast reglulega með flugfélagi sem aldrei skilar fólki á áfangastað á réttum tíma? Staðreyndin er sú að á tveggja mánaða tímabili frá byrjun ágúst til loka september skilaði flugfélagið Iceland Express farþegum sínum aldrei á tilsettum tíma til Kaupmannahafnar, Berlínar né Barcelona.

Ekki nóg með að frammistaða flugfélagsins á þessum leiðum sé vægast sagt hörmuleg heldur er staðan ekki mikið betri þegar kemur að öðrum helstu áfangastöðum félagsins samkvæmt tölfræði sem FlightStats heldur utan um.

Aðeins í 37 prósent tilfella komust viðskiptavinir Iceland Express til Gatwick í London á auglýstum tíma. Örlítið betri var árangur flugfélagsins til Stanstead flugvallar yfir sama tímabil en þá lenti helmingur véla þeirra á réttum tíma.

Sem dæmi um hversu döpur frammistaðan er má nefna að meðaltöf á flugferðum IE til Mílanó þessa tvo mánuði reynist vera rúmar þrjár klukkustundir. Tveggja tíma seinkun var normið í flugferðum IE til Barcelona þennan tíma og meðaltöf véla IE til London reyndist vera 55 mínútur.

Ekki batnar staðan neitt sé litið á heildar frammistöðu flugfélagsins yfir þetta tímabil. Í heildina urðu það sem flokkast verulegar tafir á 37 prósent allra ferða flugfélagins yfir þetta tímabil. Næsta flokkun við „verulegar tafir“ er frestun á flugi.