Endalaust virðist vera til af ryki og drullu í bakgarði ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn til að kasta í augu viðskiptavina. Athygli ritstjórnar var vakin enn á ný þegar ferðaskrifstofan kynnir á heimasíðu sinni svokallaðar sérferðir til borgarinnar Brighton á suðurströnd Englands.
Eftir ritstjórn
Kynning ÚÚ hljóðar svo: Upplifðu eitt best geymda leyndarmál Englands og njóttu helgarferðar til Brighton með Úrval-Útsýn! Brighton er oft kölluð Litla London, þar sem hún þykir bjóða uppá allt það sama og London, utan kannski leikhúsin, en veitingahúsin og verslanirnar bara allt á mun lægra verði. Borgin er björt og hreinleg – ekki alltof stór og státar af langri ferðamannahefð.
North Lanes, sem eru nokkrar mjög skemmtilegar göngugötur með fullt af litlum og skemmtilegum búðum, kaffihúsum og veitingastöðum. Flestar búðirnar eru litlar sérbúðir með t.d hönnunarhlutum, fötum, skóm og fl. Mikið af „second hand“ búðum sem margar sérhæfa sig í ákveðnum tímabilum. Flóa- og antiquemarkaðir. Mikið er um sögufræða staði og fallegar byggingar ásamt því að mannlífið í Brigthon er frábært.
Við þetta er ýmislegt að athuga burtséð frá hörmulegum málfarsvillum og enskuslettum.
- Brighton er engan veginn best geymda leyndamál Englands nema starfsfólk ÚÚ hafi aldrei ferðast, lesið né séð kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Hún er þvert á móti einn allra vinsælasti sumardvalarstaður Englendinga sjálfra og breytist úr rólyndisbæ á veturna í eina fjörugustu borg landsins á sumrin. Þá þykir hvergi vera betri strönd á Englandi en þar.
- Litla London er Brighton ekki kölluð og aldrei verið. Hins vegar er hún á stundum kölluð London við sæinn en það er ekki tilkomið vegna þess að borginni svipi til London heldur af því hversu stutt er að fara þangað frá London.
- Það er hrein þvæla að hún bjóði upp á allt sem London býður upp á. Brighton er miklu minni og úrval verslana að sama skapi minna og daprara.
- Þá eru alvarlegri glæpir algengari í Brighton en víðast annars staðar í landinu. Fjöldi líkamsárása og þjófnaða vel umfram meðaltal í öðrum borgum Englands.
- Ferð ÚÚ til borgarinnar er í nóvember á sama tíma og ferðamenn þar eru orðnir sjaldséðir. Það er ástæða fyrir því enda kalt orðið og enn engin jólastemmning í gangi.







