Tíðindi

Undarlegar áherslur Vita ferða

  02/06/2010júní 1st, 2014No Comments

Sumarið er að ganga í garð svo um munar nú í byrjun júní og flestir njóta andartaksins þessi dægrin. Engu að síður er meirihluti auglýsinga á heimasíðu Vita ferða tileinkaður næsta hausti og vetri. Þá er gert út á að ferðaskrifstofan geti útvegað ferðir á allra helstu leikina í enska boltanum len eiktíðinni í Englandi lauk fyrir tveimur vikum!

Meðal nýrra áfangastaða sem Vita hyggst bjóða upp á með haustinu er Antalya á suðurströnd Tyrklands. Ekki er það gefins enda auglýst verð kringum 200 þúsund krónur á mann. Á sama tíma selur Vita sumarferðir til nágrannabæjarins Bodrum í sama landi núna í sumar fyrir rúmlega hundrað þúsund á mann. Hvernig Vita fer að því að leggja feitar ofan á ferðir til Tyrklands með fjögurra mánaða fyrirvara og á utan annatíma í Tyrklandi en sumarferðirnar kemur ekki fram á heimasíðu fyrirtækisins.

Annar áherslustaður Vita þetta haustið er Tenerife á Kanaríeyjum.

Heilli enski boltinn einhvern í byrjun júní tíu dögum fyrir Heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu í S.Afríku er Vita málið. Þeir útvega miða á „alla stærstu leikina“ fyrir 81.900 krónur auk 15 þúsund vildarpunkta. Fyrir alla þá sem ekki vilja eða geta útvegað vildarpunkta gerir það kringum hundrað þúsund krónur. Ekki er ljóst hvernig Vita selur ferðir þessar enda ekki búið að raða niður leikjum fyrir næstu leiktíð.