Með versnandi gengi íslensku krónunnar hefur fjölgað í hópi þeirra sem reyna að spara sér skilding með því að skipuleggja ferðir sínar sjálfir. Það vita þeir sem reynt hafa að það er tímafrekt mjög en reynsla ritstjórnar Fararheill.is sýnir að slíkt getur borgað sig hvað veskið varðar.
Ýmsir hafa komist upp á lag með að bóka og kaupa flug með hagkvæmum hætti en þá er aðeins hálf sagan sögð. Hótelbókanir eru þá eftir og nett úttekt Fararheill.is leiðir í ljós að einnig þar borgar sig að gefa sér tíma og bera saman nokkrar bókunarvélar.
Fararheill.is bar saman niðurstöður fjögurra bókunarvéla við bókun á hótelinu Melía Alicante á Spáni miðað við vikudvöl 10. – 17. júlí 2010. Um tveggja manna hefðbundið herbergi var að ræða með morgunverði og fór könnunin fram kl. 15 þann 1. maí. Allar bókunarvélar voru ræstar á sama sekúndubroti og eru verð með öllum sköttum.
Niðurstöðurnar*:
Booking.com: Uppgefið heildarverð var 161.742 krónur. Verð fyrir nóttina 23.106 krónur.
Hotels.com: Uppgefið heildarverð var 164.907 krónur. Verð fyrir nóttina 23.558 krónur.
Alpharooms.com: Uppgefið heildarverð 133.998 krónur. Verð fyrir nóttina 19.142 krónur.
Rumbo.com: Uppgefið heildarverð 142.161 krónur. Verð fyrir nóttina 20.308 krónur.
Yeego.com: Uppgefið heildarverð 133.828 krónur. Verð fyrir nóttina 19.118 krónur.
HotelClub.com: Uppgefið heildarverð 157.125 krónur. Verð fyrir nóttina 22.446 krónur.
Mismunur á hæsta og lægsta verði yfir þetta tímabil miðað við þessar sex leitarvélar nam 31.079 krónum. Munar aldeilis um minna. Til samanburðar má geta þess að verð á sama herbergi á bókunarvél hótelsins sjálfs var 161.886 eða 23.126 á nóttina.
Þó ekki megi alhæfa neitt er ljóst að þekktustu hótelleitarvélarnar Booking.com og Hotels.com eru báðar allmiklu dýrari en þær óþekktari í þessu tilfelli. Þá er hér heldur ekki tæmandi listi yfir leitarvélar og því mögulegt að finna enn lægra verð en í þessu tilfelli.
* Öll verð umreiknuð í krónur miðað við gengið gangvart evru föstudaginn 31. apríl.







