Það er aldeilis bót í máli að starfsfólk ritstjórnar Fararheill er hvorki með hár á höfði né skegg. Annars værum við öll að rífa hár okkar og skegg þessa stundina að reyna að átta okkur á svokölluðum jólapökkum Icelandair og Iceland Express.
Bæði Icelandair og Iceland Express bjóða til sölu fyrir jólin sérstök jólafargjöld sem eiga að vera kjörin í jólapakkana. Hjá Iceland Express heitir þetta jólagjafabréf en jólapakki hjá Icelandair.
En nokkur geimvísindapróf þarf til að átta sig á og setja í samhengi alla þá skilmála sem fylgja og hafa verður í huga við kaupin þó vissulega virðist þau verð sem í boði eru afar fín.
Sem dæmi má hér sjá skilmála Icelandair vegna jólapakkanna þeirra:
- Jólafargjöld gilda aðeins í beinu flugi Icelandair á tiltekna áfangastaði: London, Manchester, Glasgow, Kaupmannahöfn, Stokkhólm, Oslo, Amsterdam, Frankfurt, París og Helsinki í Evrópu og New York, Boston og Seattle í Bandaríkjunum.
- Bókunartímabil jólafargjalda er frá 22.desember 2011 til og með 13. janúar 2012. Eftir 13.janúar er jólafargjald ekki í boði.
- Ef gjafabréfið er ekki notað fyrir þann tíma, þ.e. ekki er gerð bókun, þá gildir gjafabréfið sem inneign og má nota sem greiðslu upp í önnur fargjöld og skatta.
- Gjafabréfið gildir í eitt ár frá útgáfudegi þess.
- Ferðatímabilið er frá 10. janúar til og með 31. mars 2012. Síðasti ferðadagur á jólafargjaldi er 31. mars 2012 (lent á Íslandi 1.apríl 2012 frá USA). Athugið að flug til Helsinki hefst 2. mars 2012.
- Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags nema á Saga Class gjafabréfum.
- Ferð verður að hefjast á Íslandi og eingöngu er hægt að ferðast til og frá sömu borg.
- Breytingar: Ef jólafargjald er til er breytingargjaldið 13.000 krónur á Economy farrými og 10.000 krónur á Economy Comfort. Ekkert breytingargjald á Saga Class.
- Á öllum farrýmum bætist við fargjaldamismunur ef jólafargjald er ekki fáanlegt á því flugi sem breytt er á. Einnig getur komið til gengismunur á sköttum og gjöldum.
- Endurgreiðslur og nafnabreytingar á farseðlum eru ekki heimilaðar.
- Þjónustugjald kr. 3.000 er innheimt ef flug er bókað á söluskrifstofu eða í gegnum síma. Netbókunargjald kr.500 er innifalið í verðinu ef bókað er í gegnum heimasíðu www.icelandair.is
- Enginn afsláttur er veittur fyrir börn eða ungabörn af jólapökkum á Saga Class.
- Jólafargjald er ekki í boði á öllum flugum og sætaframboð er takmarkað.
- Uppfærsla með Vildarpunktum er ekki heimil.
- Ekki er hægt að breyta gjafabréfi aftur í Vildarpunkta.
- Athugið að enginn afsláttur er fyrir börn eða ungabörn af jólapökkum ef greitt er með Vildarpunktum og peningum.
- Jólafargjöld eru auðkennd með rauðum lit á bókunarvél Icelandair.
Þetta er svipað á lengd og fyrstu kaflar í mörgum jólabókunum í ár en öllu leiðinlegri lestur. Fjölmargt í þessu smáa letri skýtur þó skökku við fyrir þann sem vill gleðja mann og annan um jólin. Þiggjandinn hefur aðeins þrjár vikur til að ákveða hvert hann vill fara á þeim jólapakkagjöldum sem í boði eru. Jafnvel þó það sé ákveðið er framboð jólasætanna takmarkað og ekkert gefið að viðkomandi komist í þær ferðir sem best henta. Síðast en alls ekki síst þarf ekki aðeins að bóka fyrir 13. janúar heldur og fara ferðina á næstu þremur mánuðum eða ekki síðar en 31.mars.
Skemmtilega jólagjöfin getur því á skömmum tíma breyst í inneignarbréf sem dugar ekki einu sinni fyrir lægsta fargjaldi til ódýrasta áfangastaðar flugfélagsins. Ekki síst er bagalegt að á jólapakkavef Icelandair kemur hvergi fram að um ferðir fram og til baka sé að ræða. Fararheill getur staðfest að svo er en slík yfirsjón er skrambi dapurt prógramm.
Öllu skilmerkilegri eru jólagjafabréfin sem auglýst eru hjá Iceland Express. Er þar aðeins um London og Kaupmannahöfn að ræða en jólagjöfin er ódýrari, 25.900 krónur á móti 29.900 hjá Icelandair en hjá Iceland Express er líka bæði bókunartíminn og ferðatíminn lengri. Bóka má ferð fram til 1. febrúar áður en gjafabréfið breytist í inneign og flugtímabilið nær til 15. maí næstkomandi.
Afstaða ritstjórnar Fararheill er að tilboð beggja fyrirtækja eru allgóð miðað við allt og allt. En að setja svo ægilegar skorður á notkun þess sem auglýst er sem fyrirtaks jólagjöf er dónaskapur.






