Sitt sýnist hverjum um að versla við flugfélagið Iceland Express og kemur þar til að eigandinn er einn hinna „illræmdu“ útrásarvíkinga. Sá hefur misst mestallt sitt en heldur flugfélaginu á einhvern óskiljanlegan máta. Reyndar á sá ekki flugfélagið enda Iceland Express aðeins ferðaskrifstofa sem leigir vélar frá breska flugfélaganu Aestreus en það er önnur saga.
Engu að síður er Iceland Express eini samkeppnisaðili Icelandair hér á landi og Íslendingum nauðugur einn kostur að nota annað hvort. Af og til vakna þó spurningar sem aldrei fæst svarað um verðlagningu Iceland Express og rakst ritstjórn Fararheill.is á þetta merkilega dæmi sem er þó fjarri því að vera einstakt:
Verð og gjöld
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||
| Heildarverð, ISK 37.650 | |||||||||||||||||||||||||||||||||
Það er ábyggilega ekki kennt í hag- eða viðskiptafræði hvernig stendur á því að skattar og gjöld fyrir ferð sem kostar 9.890 eru hærri en fyrir ferð sem kostar 12.040 krónur. Skattur reiknast eðli málsins samkvæmt sem prósenta af seldri vöru og er því hlutfallslega alltaf sá sami af verði. Það þýðir aðeins að svokölluð „önnur gjöld“ flugfélagsins eru mun hærri í fluginu heim á leið en fluginu út.
Þarna er ekki um nein sértilboð að ræða og enginn hjá fyrirtækinu hefur svarað fyrirspurnum okkar vegna þessa.






