Tíðindi

Ráða mannskap til að ráða mannskap

  05/01/2010maí 17th, 2014No Comments

Ferðamálayfirvöld í Queensland þurfa að ráða fleiri til að fara gegnum þær 34 þúsund umsóknir um stöðu eyjavarðar sem auglýst var fyrir jólin og vakti heimsathygli.

Starfið felst í umsjón og rannsóknum á lítilli hitabeltiseyju úti fyrir ströndum ríkisins en miðað við fjölda umsókna er það draumastarf margra.Líklegt er þó talið að efnahagslægðin á heimsvísu hafi eitthvað með fjöldann að gera enda hundruðir þúsunda ef ekki milljónir á atvinnuleysisskrám í heiminum í dag.

Umsóknir komu frá 34.648 einstaklingum alls frá 25 löndum flestar frá Bandaríkjunum og Bretlandi.

Ekki er vitað til að Íslendingar hafi sótt um enda kannski langsótt þar sem meðalhiti á eyjunni er 38 gráður. Hinn hefðbundni Frónbúa þyldi það í sirka 30 mínútur.

Tilkynnt verður hver starfið hlýtur í næsta mánuði en samkvæmt fregnum eru allnokkrir sem um sækja þekktir úr veruleikaþáttum og sjónvarpi um víða veröld