Sumarvertíðinni við Miðjarðarhafið fer senn að ljúka í ferðamannabransanum og eru líklega einhverjir því fegnir enda fækkaði ferðamönnum á helstu svæðum á Spáni, Ítalíu og í Grikklandi um heil tíu prósent milli ára eða um tæpar tíu milljónir ferðalanga.
Munar um minna fyrir löndin þrjú sem þrátt fyrir allt saman eru enn í hópi þeirra fátækari í Evrópu.
Fullyrðir World Travel & Tourism Council að fjárhagslegt tap á þessu sumri samanborið við síðasta ár sé ekki undir 2.5 billjónum króna.
Hafa ríkisstjórnir allra landanna þriggja gripið til örþrifaráða til bjargar og fellt niður skatta og lækkað gjöld eftir megni en sérfræðingar margir í stærri bönkum heims vilja þó margir meina að ekki rætist úr fyrr en að ári liðnu hið fyrsta og jafnvel ekki fyrr en eftir tvö ár.






