Seint verður sagt um landann að hann sé ævintýragjarn með afbrigðum. Allavega ef marka má lista Dohop.is yfir þá áfangastaði í heiminum sem Íslendingar leituðu mest að á liðnu ári. Þar eru, svo vitnað sé í lögreglumál, að mestu tómir góðkunningjar.
London, París, Róm söng Páll Óskar Hjálmtýsson um árið en hitti ekki alveg naglann á höfuðið því borgirnar eru London, Kaupmannahöfn og Osló sem Íslendingar leituðu mest að á flug- og hótelleitarvef Dohop 2012.
Það er reyndar jákvæðasta mál því það merkir að margir eru farnir að átta sig á að á þessum flugleiðum er komin samkeppni. Of margir láta enn nægja að leita einungis að flugferðum á vef Icelandair og Wow Air. Á þessum leiðum eru oft á köflum betri kjör í boði hjá easyJet, SAS eða Norwegian en finnast hjá hinum innlendu félögum.
Árslistinn, sem tekinn var sérstaklega saman af hálfu Dohop fyrir Fararheill, er þó að mestu leyti í stíl við sams konar lista sem við birtum um mitt síðasta ár en þar eins og nú eru tvær borgir sérstaklega sem athygli vekur að leitað sé eftir. Þær eru Bangkok og Belgrad af öllum. Bangkok skiljanleg upp að marki en hvers vegna leitað er að Belgrad svipað oft og Boston eða Frankfurt er merkilegt.
Árslistinn 2012 að öðru leyti eins og hér að neðan en hann sýnir þær borgir sem hvað flestir notendur Dohop hérlendis leituðu að flugi til allt síðasta ár.








