T veir af fjórum úr ritstjórn Fararheill þegar bókað flug út í heim með flugfélaginu Play sem senn tekur til starfa og býður töluvert lægri fargjöld en Icelandair. En merkilegt nokk býður Play ekki nokkrum manni upp á að kolefnisjafna flugspor sitt með flugfélaginu.

Nýtt og ferskt flugfélag en samt gamaldags. Skjáskot

Það er ekki aðeins mjög miður heldur beinlínis kjánalegt á 21. öldinni þegar önnur hver sála hefur eðlilega áhyggjur af framtíð þessarar fallegu plánetu okkar og vitað er að flugsamgöngur menga hlutfallslega mjög mikið.

Vitaskuld getur fólk prívat og persónulega kolefnisjafnað flugferðir sínar en það er líka þekkt að ef hafa þarf fyrir hlutunum eru mun minni líkur á að þeir gerist.

Icelandair hefur lengi vel boðið upp á slíka kolefnisjöfnun þó reyndar það fari fáránlega lítið fyrir því á bókunarvef þess flugfélags. Lággjaldaflugfélagið easyJet hefur tekið upp á sitt einsdæmi að kolefnisjafna flug allra sinna farþega, sem skipta milljónum, og mýmörg flugfélög önnur bjóða upp á slíkt sem jafn sjálfsagðan hlut og að innrita farangur. Sem það er árið 2021.

En kannski er forsvarsmönnum Play slétt sama um heiminn svo lengi sem seðlar detta í bankann…