„Miðað við viðbrögð við hugmyndinni eru ekki miklar líkur á að þetta klikki. En svo það sé sagt, þá þarf lágmarksfjölda í þessa brottför þannig að þetta gangi upp. Fyrir 13. nóvember þurfa 170 manns að hafa bókað.”

Á tímum Kófsins er næsta kjánalegt fyrir ferðaskrifstofur að lofa nokkrum hlut. Skjáskot

Það sem getur farið úrskeiðis fer úrskeiðis er hið fræga orðatiltæki sem Murphy nokkur á að hafa sagt í denn tíð. Forráðamenn ferðaskrifstofunnar Tripical féllu í gildruna. Ferð, hvers líkur á að klikka voru ekki miklar, var að klikka.

***** þessari ferð hefur verið aflýst þar sem ekki náðist lágmarksþátttaka*****

Átta daga túr Tripical til Tenerife sem átti að hefjast 19. nóvember heyrir sögunni til. Fyrirtækið gat ekki selt 170 sæti í túrinn.

Tripical ekki eitt um að slútta ferðum þessa síðustu og verstu. Úrval-Útsýn henti fjölda ferða til spænsku eyjunnar út í hafsauga fyrr í vikunni.

Kófsreglur á Kanaríeyjum öllum voru hertar fyrir tæpri viku síðan þrátt fyrir að Kófið sé ekki að gera mikinn usla þar heilt yfir. Tæplega 30 einstaklingar reyndist sýktir á Tenerife þennan daginn svona til að setja hlutina í samhengi. Ekki mikið fjarri daglegum sýkingum á farsæla Fróni undanfarið.

Eyjurnar eru þó ekki lokaðar í neinu tilliti. Þvert á móti er allt galopið ennþá. Það eina sem ferðafólk þarf að gera er að sýna nýlegt vottorð um heilbrigði og kófsleysi við komu og voilà! Þú kemst inn vandræðalaust.

Þessar takmarkanir tóku gildi 30. október síðastliðinn og því höfðu bæði Tripical og Úrval-Útsýn drjúgan tíma til að biðla þeim upplýsingum til viðskiptavina sinna. Hver er að fara að henda sólríkri Kanaríferð fyrir róða gegn því að fara í kófspróf rétt fyrir brottför?

Alls enginn! En extra kjánalegt hjá Tripical að gefa til kynna hve líkurnar voru nú litlar…