Það er ekkert annað. Nýjustu tölur úr Costa Blanca kjördæminu benda til þess að ekki hafi færri erlendir ferðamenn heimsótt héraðið síðustu misserin en síðan 1973!!!

Hvítaströnd, Costa Blanca, er príma stopp alla daga ársins. En þangað koma fáir þessi dægrin. Skjáskot

Costa Blanca er líklega stærsta Íslendinganýlenda sunnan Alpafjalla en tugþúsundir eiga eignir þar um slóðir.

Eins og við bentum á fyrir nokkru fer að líða að því að hægt sé að gera fínustu kostakaup á eignum á þeim slóðunum og helst sökum þess að eins dauði er annars brauð.

Með öðrum orðum; fjöldi fólks sem keypt hefur eignir á þessum slóðunum undanfarin ár hefur gert það í því skyni að láta eignina greiða fyrir sig sjálfa með útleigu. Það plan sjálfdautt nú þegar ferðamenn á þessum slóðum eru færri en góðar hugmyndir sjálfstæðisflokksins. Svo fáir faktískt að þeir hafa ekki verið færri síðan árið 1973 eins og ofangreint myndband gefur til kynna.

1973 var Spánn ekki einu sinni á korti ferðafólks enda aðeins vellauðugt fólk sem gat þvælst landa á þeim tíma. 1973 var hægt að kaupa feita villu við ströndina í Alicante fyrir fimm milljónir króna á þávirði.

Áhugasamir um kaup ættu að geyma seðla undir kodda í mánuð eða tvo til viðbótar áður en fólk lætur til skarar skríða. Það er jú ekkert að fara að lagast alveg næstu misserin 😉