Þú þarft fyrirvaralaust að skjótast til New York og varla tími til að pakka nærum í tösku og hvað þá að bóka hótel eða aðra þjónustu áður en þú flýgur vestur um haf með Delta Airlines frá Keflavík. Engar áhyggjur samt. Það er verið að fylgjast með þér.

Upplýsingar sem þú lætur af hendi við bókun gegnum snjallsíma og öpp fara víða og margir græða.

Upplýsingar sem þú lætur af hendi við bókun gegnum snjallsíma og öpp fara víða og margir græða.

Vefmiðlarnir Skift og Tnooz birtu nýlega forvitnilegar greinar um hvers mikil samskipti eru orðin milli stórfyrirtækja gegnum samstarf ýmis konar sem viðskiptavinir þeirra vita ekkert um.

Það á ekki síst við um upplýsingagjöf en eins og vitiborið fólk veit þá hefur aldrei verið auðveldara fyrir fyrirtæki að næla í persónuupplýsingar frá viðskiptavinum. Og þær upplýsingar ganga á milli hinna ýmsu fyrirtækja án þess að margir geri sér grein fyrir og oft gegn greiðslum. Fyrirtæki eru þannig að græða töluverða peninga á persónuupplýsingum fólks sem á við þau viðskipti.

Þess vegna gæti sá sem þarf til New York í hvínandi hvelli og pantar sér flug eftir klukkustund fengið tvenns konar skilaboð í símann sinn innan nokkurra mínútna eftir flugbókun. Annars vegar frá hótelkeðjunni Starwood sem bendir þér á heppilegt hótel og hins vegar til dæmis frá leigubílaþjónustu Uber sem vill gjarnan skutla þér frá flugvellinum.

Hvernig á þetta sér stað? Hvernig veit Uber að þú ert að lenda í New York eftir nokkrar stundir og hvernig veit Starwood að þig vantar líklega gistingu í þrjá daga?

Ástæðan er sú að Delta Airlines, sem er eitt flugfélaga sem flýgur öllu jöfnu milli Keflavíkur og New York, er í samstarfi við Starwood hótelin. Upplýsingar frá Delta lenda inn á borði Starwood að öllu leyti eða hluta og gefur hótelkeðjunni þann möguleika að bjóða þér gistingu. Delta fær þóknun fyrir. Starwood hótelin eru þó með fleiri samninga en það. Þeir eru líka í samstarfi við American Express og Uber svo aðeins tvö fyrirtæki séu nefnd. Þaðan fær Uber upplýsingar um flug þitt, lendingartíma og kannski hótel ef þú bókar það og getur boðið bíl fyrir utan flugstöðina þegar þú lendir.

Uber aftur á móti er líka með samninga við ákveðnar verslanir og þess vegna gætirðu líka fengið í símann þinn upplýsingar um að Macy´s sé með útsölu á handtöskum svo dæmi sé tekið. Og svo framvegis og svo framvegis.

Einhverjum kann að finnast þetta hin allra besta þjónusta. Viðskiptavinurinn þarf ekkert að hafa fyrir hlutunum. Toppþjónusta alveg.

Eða hvað?

Fyrir utan þá staðreynd að allar þessar persónuupplýsingar sem þú gafst Delta enda uppi hjá hinum og þessum öðrum aðilum án þess að þú hafir í raun hugmynd er æði algengt að hakkarar steli slíkum gögnum frá fyrirtækjum. Kreditkortaupplýsingar og aðrar persónuupplýsingar eru mikil verðmæti á svörtum mörkuðum. Engin ástæða er til að ætla annað en hakkarar muni um ókomna tíð komast í þau gögn meðan hægt er að græða á. Og fyrirtækin eru heldur ekkert endilega að auglýsa þegar gögnum er stolið frá þeim. Oftar eru það fjölmiðlar sem komast á snoðir um slíkt.

Miklu verra samt að þetta tryggir að stórfyrirtæki verða ætíð í fararbroddi hversu góða eða lélega þjónustu þau veita. Smærri aðilar eiga enga möguleika að bjóða jafn mikla og freistandi þóknun fyrir að fá senda til sín viðskiptavini.

Í dæminu að ofan er Starwood ábyggilega ekki að benda þér á ódýrasta gistikostinn og vel getur verið að gjald Uber fyrir skutlið sé mun hærra en þú myndir greiða fyrir venjulegan leigubíl á vellinum. Og þetta er svo skrambi auðvelt og nútímamaðurinn vill alltaf hafa minna og minna fyrir hlutunum. Það kannski skiljanlegt en því fylgir hár kostnaður. Fyrirtæki vita ýmislegt um þig og ekki láta þér detta í hug að þeim upplýsingum sé ekki safnað saman yfir tímann og mögulega seld hæstbjóðanda einn daginn. Hversu oft hafa til dæmis Google og Facebook breytt notendaskilmálum sínum? Upphaflega lofuðu bæði að persónuupplýsingar yrðu ALDREI gefnar, dreift eða seldar. Nú eiga þeir allt efni sem þú setur inn á vefina og þeir geta notað að vild hvenær sem er og selt ef út í það er farið.

Það þarf ekki mjög frjótt ímyndunarafl né skyggnigáfu til að sjá í hendi sér hvert þetta leiðir í framtíðinni. Sömu framtíð og þú ert að búa börnunum þínum.

Farið varlega þarna úti.