Hmmm. Maður býst við að greiða lágmark þúsara plús fyrir morgunverð per haus á fjögurra til fimm stjörnu hóteli á eðlilegum tímum þegar allt er í blússandi sveiflu. Ekki svo mikið þegar hvert einasta hótel undir sólinni berst í bökkum.

Morgunverður á beisik þriggja stjörnu hóteli á Tene um áramótin kostar manninn um þúsund krónur eða svo.

Það engu að síður raunin samkvæmt jóla- og áramótaferð Heimsferða til Tenerife sem lesa má um hér.

Extra spennandi túr með tilliti til að við höfum öll, meira og minna, verið föst heimavið um ár og raðir að því er virðist andlega. Hvað betra til að vinna bug á neikvæðni og depurð en skær sólin á Tene?

Við áður fjallað um þá merkilegu staðreynd að auglýstir túrar íslenska ferðaskrifstofa til Kanaríeyja á næstu misserum, kosta meira og minna það sama og sömu túrar kostuðu áður en kóróna gerði vart við sig og rústaði ferðamennsku á Kanarí eins og annars staðar. Þar, líkt og annars staðar, er sáraeinfalt að fá feita afslætti frá hefðbundnu verði með því einu að spyrja. Það er jú ekki eins og betlarar geti heimtað þegar allt er í volli. Það í ofanálag við að það kostar klink þessi dægrin að reka þotu og henda 200 manns hingað og þangað.

En það ekki aðeins flugið og gistingin sem enn kostar okkur mikið til það sama. Skitinn morgunverður kostar, merkilegt nokk, hönd og fót og það á Costa Adeje á Tenerife á þriggja stjörnu hóteli á sama tíma og annað hvert hótel á Kanarí er að fara yfir um!

Ók, verum hreinskilin. Hvað er í morgunverð á þriggja stjörnu hóteli svona almennt? Ódýr jógurt, þreytt kornflex, ódýrasti appelsínusafinn, slæmt kaffi plús mögulega skinkudrusla og í besta falli soðin eða steikt egg.

Er mögulegt að slíkur morgunverður kosti þúsund kall á haus? Vel rúmlega 30 þúsund krónur á hjón eða par sem dvelja í tvær vikur?

Neibbs og punktur. Það er okur. Ferðastjórar Heimsferða þurfa að fara að vinna vinnuna sína…