Jæja, loks kom að hækkun á bréfum Icelandair eftir tóman niðurgang frá frægu hlutafjárútboði fyrir rúmum mánuði síðan. Hvert bréf hækkaði úr 0.94 í 0,96.

Forstjóri Icelandair. Ekkert megatraust fjárfesta þrátt fyrir velheppnað hlutafjárútboð nýlega.Mynd Icelandair
Í útboðinu þann 16. september seldi flugfélagið hvert bréf á eina krónu stykkið og þótti vel boðið af misvísum spekingum.
Síðan hefur vegurinn legið sæmilega niður á við í hlutabréfamarkaði. 18. október fengust sömu bréf á 0.94 aura stykkið.
Það út af fyrir sig merkilegt því Seðlabanki Íslands henti aurum á haugana fyrir tæpum tuttugu árum síðan. Þú færð enga afgreiðslu í kjötborði Hagkaupa eða annars staðar með aura eina að vopni. En risafyrirtæki njóta auðvitað betri kjara en skitinn landinn.
Burtséð frá því þá varð raunverulega HÆKKUN á bréfum Icelandair þennan daginn. Hvert bréf fór úr 0,94 aurum í 0,96 aura. Tveir aurar í plús!!!
Allt að gerast 😉







