Ó hvað þvælingur um heiminn var einfaldari í denn tíð þegar myndavélar voru ekki á hvers manns færi og hægt var að dissa Jón og Gunnu vandræðalaust við Spænsku þrepin í Róm eða á markaðnum í höfuðborg Guyana.
Víst ekki hægt lengur. Allir frétta nú allt á þremur sekúndum sléttum og draga ályktanir á einni sekúndu sléttri ofan á það 🙁
En svona fyrir okkur gamla fólkið er óhætt að muna þá tíma þegar hægt var að gera megaskandal erlendis og enginn frétti af því 🙂
Föstudagslagið tekur mið af þessu. La Mer með Charles Tenet er klassík í allri merkingu. Það var vinsælt þegar fólk var bara fólk. Það liðin tíð því miður…







