Lausleg könnun ritstjórnar Fararheill meðal vina, ættingja og kunningja bendir sterklega til þess að meirihluta hrylli við að tölta um borð í rellu og deila rúmi og tíma með hundruðum ókunnugra nú þegar kórónavírusinn fer um allt eins og fitubolla í flogakasti.

Það er merkilega öruggt heilsufarslega að fljúga.
Hræðslan sú eðlileg með öllu. Það er jú nánd við fólk sem getur dreift vírusnum hraðar en Sigmundur Davíð fer með fleipur.
En merkilegt nokk er barasta æði öruggt að sitja í rellu nokkrar klukkustundir á tímum faraldurs. Að því gefnu auðvitað að flugfélagið sem flogið er með sinni sótthreinsun af kostgæfni og að engir skítalúðar valsi um farþegarými grímulausir.
Það er nefninlega svo að loftræstikerfi velflestra farþegarþotna eru útbúin allra bestu síum sem völ er á. Svipuðum eða sömu loftsíum og notaðar eru á skurðstofum sjúkrahúsa. Reyndar skal ekkert fullyrt varðandi vélar Icelandair enda þær flestar frá sama tíma og Vanilla Ice gerði garðinn frægan en flestar yngri vélar en það bjóða upp á fyrirtaks loftgæði.
Með öðrum orðum: líkurnar á að smitast af kóróna í flugi eru eins takmarkaðar og mögulegt er. Hafðu grímu um vitin, slepptu sífelldum pöntunum á alkóhóli um borð og þú gengur úr rellunni hressari en Hemmi Gunn á spítti.







