Fávísir yfirmenn Icelandair hafa lengi átt í ástarsambandi við bandaríska flugvélaframleiðandann Boeing og keypt hugsunarlítið allt sem þaðan kemur. En þetta löngum flotta bandaríska fyrirtæki hefur verið á brauðfótum um fimmtán mánaða skeið og aðeins eitt þarf í viðbót til að innsigla endanlega örlög þess fyrirtækis.

Flottar myndir frá Boeing. Verst að ekkert af þessu drasli virkar eins og skyldi. Mynd Boeing

Ekki svo að skilja að Boeing sé að fara á hausinn þó fyrirtækið skuldi tugmilljarða króna og eigi ekki bót fyrir boru í bankanum þrátt fyrir langa sögu.

Boeing er stöðutákn fyrir bandarískan iðnað og eins og Icelandair hér heima, mun ekki falla því ríkið mun ávallt veita þeim alla þá skattpeninga sem þörf er á. Ekki síst sökum þess að helmingur Boeing verksmiðjanna helgar sig eingöngu framleiðslu drápsvopna af ýmsu tagi og þarlend stjórnvöld slefa hægri, vinstri yfir öllum nýjungum sem gera þeim kleift að vinna sitt fyrsta stríð um 60 ára skeið.

Boeing hefur sem kunnugt er verið í helvíti Dante´s með Max-vélar sínar um rúmlega eins árs skeið og þær rellurnar enn ekki fengið flughæfisskírteini þrátt fyrir að allt hæfasta fólk Boeing hafi unnið feita yfirvinnu vegna málsins síðustu fjórtán mánuði.Enn alls óvíst hvort Boeing-Max rellur muni nokkru sinni fljúga að nýju eða hvort Jón og Gunna hafi nokkurn áhuga að stíga upp í vélar Boeing í framtíðinni ef þær fá grænt ljós.

Kína – Bandaríkin

Merkilegt nokk eru það Kínverjar sem hafa örlög Boeing í hendi sér þessi dægrin. Það helgast af eilífum ásökunum og viðskiptaþvingunum forseta Bandaríkjanna síðustu misserin. Þorpsfíflið í Hvíta húsinu notar hvert tækifæri til að þvinga kínversk stjórnvöld og hótar jafnvel stríðsátökum ef þeir gera ekki allt sem hann vill og gildir einu hversu fáránlegar kröfurnar eru.

Þar gleymir forsetinn fávísi að Kína, ekki Bandaríkin, hafa verið drifkraftur blómlegs efnahags heimsins síðustu tíu árin eða svo. Það er Kína, ekki Bandaríkin, sem eytt hafa formúgum í innviði ýmissa fátækra, og ekki svo fátækra, ríkja síðustu árin meðan Kaninn getur ekki einu sinni lagfært vegi og brýr í sínu eigin landi. Það er Kína sem getur gjaldfellt bandarískan dollar á augabragði með magnsölu á ríkisskuldabréfum Bandaríkjanna með hörmulegum afleiðingum fyrir Kanann. Það er Kína sem getur, ef þeir kæra sig um, fellt gengi dollars svo herfilega að hann verður næsta ónýtur sem alheimsgjaldmiðill og við tekur evra eða jafnvel renmimbi. Þar með er ógnarvald Bandaríkjanna yfir hinum ýmsu fátækum löndum heims farið fjandans til.

Kína og Boeing

En aftur að Boeing. Donald Trump hefur ítrekað síðustu mánuðina sett grimmar viðskiptahömlur á Kína og kínverskar vörur í ofanálag við eilífar hótanir. Það þrátt fyrir að öll stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna reiði sig á kínverska framleiðslu til að selja vörur sínar á þokkalegu verði. Kínverjar hafa hingað til EKKI svarað fyrir sig nema að litlu leyti.

Og þar liggur hundurinn grafinn.

Ef Trump gengur framaf Kínverjum einn góðan veðurdag, sem hann mun gera, og Kínverjar setja sams konar viðskiptaþvinganir á Kanann og Bandaríkjamenn hafa sett á Kína, er Boeing algjörlega fyrsta fyrirtækið sem fer framaf hinu fjárhagslega bjargi. Það eru nefninlega líka Kínverjar sem hafa undanfarin fjögur ár keypt mest af farþegaþotum frá bæði Boeing og Airbus og það er í Kína sem mestur vöxtur flugfarþega hefur verið síðastliðin átta ár.

Boeing var í sárum vel áður en kórónavírusinn gerði usla og ef Kínverjar setja einhvers konar hömlur, skatta eða takmarkanir á bandarískar flugvélar á næstunni sem andsvar við þvingunum Trumps er Boeing-fyrirtækið búið að vera. Nema sem vopnaframleiðandi.

Það yrði príma gott skref fyrir heiminn ef þið spyrjið okkur hér.