Fátt er svo með öllu illt að ekki hljótist gott af. Þar með talin gisting í Asíu næsta veturinn 🙂

Undanfarin ár hefur þurft að punga út 20 til 40 þúsund krónum fyrir fimm stjörnu gistingu í Tælandi. Ekki lengur 🙂
Vægast sagt hörmuleg tölfræði sem hagstofur hinna og þessara ríkja hafa verið að birta síðustu dægrin um aðsókn ferðafólks:
Spánn: 0% ferðamenn. Ítalía 0% ferðamenn. Dúbaí 0% ferðamenn. Indónesía 1% ferðamenn. Filippseyjar 2% ferðamenn. Og svo framvegis og svo framvegis.
Ferðamennska á heimsvísu verið dauð og grafin síðustu tvo mánuði eða svo og alls óvíst hvað verður þótt stöku ríki hér og þar hafi nú opnað gáttir að nýju eftir kórónafaraldurinn. Jafnvel ekki útilokað að vírusinn sá taki sig feitt upp að nýju við fyrsta tækifæri og geri þannig endanlega útaf við þau örfáu ferðaþjónustufyrirtæki sem ekki þurfa skattpeninga til að þrauka nokkra mánuði.
Þegar hafa hin ýmsu ríki gripið til aðgerða vegna þessa. Á skattaskjólseyjunni Kýpur ætla yfirvöld að hleypa öllum inn og ef einhver veikist verður ferðin endurgreidd að fullu. Í Ástralíu ætla stjórnvöld að lofa ókeypis læknisþjónustu fyrir erlent ferðafólk. Á Íslandinu ætla stjórnvöld að borga fyrir skimun erlendra ferðamanna og eyða hundruðum milljóna af skattfé til að Jón Frakki og Gunna Tékki geti nú skoðað landið okkar og keypt kínverska lundabrúðu. Þess utan hafa fjölmörg stjórnvöld hvarvetna lofað gríðarlegum afsláttum fyrir heimafólk ef það ferðast innanlands þetta árið.
Það virðast samt aðeins vera þjóðir Asíu sem hafa hugsað málið aðeins lengur en fimm mínútur fram í tímann. Frá og með næsta hausti er hægt að verða sér úti um ferða- og gistitilboð víðs vegar í Asíu sem hafa ekki verið í boði um 20 ára skeið. Allt að 85% afsláttur af ferðum og gistingu frá og með þeim tíma ef fólk þorir á annað borð.
Hvað þýðir það í raun?
Jú, við kíktum af handahófi á gistivef okkar til að sannreyna yfirlýsingar í fjölmiðlum.
Svo virðist sem flest sé satt og rétt. Við fundum ýmis konar gistingu á ýmsum stöðum í ýmsum löndum Asíu frá og með næsta hausti á fáránlegu verði. Fimm stjörnu topphótel að bjóða nóttina niður í 5.500 krónur! Koja á farfuglaheimili niður í 130 krónur per nótt! Safarídagsferð með tveimur máltíðum fyrir sama verð og þú greiðir fyrir skitna máltíð á KFC hér heima.
Ekki algilt auðvitað og við bara að taka nett tékk en svo virðist sem ferðaþjónustuaðilar hinu megin á hnettinum séu raunverulega að gera sitt allra besta. Eða hvaða fimm stjörnu hótel græðir eina krónu á að selja fínt herbergi með súperþjónustu á 5.500 krónur per nótt?
Kannski aldrei betri tími til að sækja Asíu heim 🙂







