„Þetta er nett kvef og aumingjaháttur í tvo, þrjá daga tops og síðan er málið dautt.”

Merkilega margir hafa barasta engar áhyggjur af kórónavírusnum. Það slæm mistök.

Margt bendir til þess að töluverður fjöldi fólks sé enn ekki að taka kórónafaraldurinn ýkja alvarlega þó hvert landið á fætur öðru sé nú að loka og pakka saman. Ofangreint var hlerað á spjalli fjögurra ungra drengja fyrir utan verslun síðdegis í dag.

Óskandi væri að þetta væri bara kvef og „aumingjaháttur” í tvo daga. Það gildir mögulega um hórmónafyllt ungmenni í blóma lífsins en fyrir flesta aðra, þar með talin ungabörn og sérstaklega eldra fólk, er kórónavírusinn sannarlega dauðans alvara.

Kíkjum á nýjustu tölur úr kórónakjördæminu. 153.584 sýktir á heimsvísu, 72.587 hafa náð sér að fullu og verið útskrifaðir (vel innan við helmingur.) Og þá kemur að rúsínunni í pylsuendanum: 5.789 látnir.

Það, gott fólk, er hvorki meira né minna en 3,7 prósenta dánartíðni!

Ekki nóg með það. Fernt í viðbót gerir þessa viðbjóðsveiru sérstaklega hættulega.

A) Það eru komin fram minnst TVÖ afbrigði af covid-19 þegar þetta er skrifað. Sem eykur flækjustigið til mikilla muna..

B) Í ljós hefur komið að fjöldi þeirra sem ná sér af vírusnum eru með skerta lungnastarfsemi.

C) Fyrir þau okkar sem vonast eftir lyfjum eða lækningu sem allra fyrst er ágætt að hafa hugfast að covid-19 veiran er af sömu ætt og kvefpest. Og þrátt fyrir hundrað ára rannsóknir hefur engum tekist að finna lækningu eða lyf við kvefi.

D) Sýnt hefur verið fram á að þeir sem sýkjast og ná sér að fullu, geta samt auðveldlega sýkst aftur. Þetta er ekki flensa sem svo batnar og allir glaðir.

Farið varlega þarna úti 😉