Gestir hótelkeðjunnar Crown Plaza munu í framtíðinni fá vakningu hvort sem þeim líkar betur eða verr um miðja nótt ef því er að skipta, ef sérstakir eftirlitsmenn verða þess varir að gestur hrýtur hærra en boðlegt þykir.

Nýjung hjá Crowne Plaza hótelinu.

Nýjung hjá Crowne Plaza hótelinu.

Þetta á við ef gestir óska þess sérstaklega að fá herbergi í „rólegri“ álmu hótelanna en hótelkeðjan hefur sem tilraunaverkefni breytt nokkrum hótelum sínum og býður nú sérstök herbergi á rólegum svæðum fyrir þá sem sofa létt eða illa.

Þetta fersk þjónusta en eins og vel sigldir Íslendingar vita eru mörg hótel erlendis með svo næfurþunna veggi að það liggur við að það heyrist þegar gestur í næsta herbergi skiptir um skoðun. Það lítt spennandi og fjarri því afslappandi og því vill Crown Plaza bregðast við.

Bjóðast þannig hljóðlegar álmur eða hæðir nú á einum tuttugu og þremur hótelum keðjunnar víða um heim en þar eru á vappi sérstakir næturverðir sem vekja þá sem þykja of hávaðasamir að þeirra mati. Þeim einstaklingum boðið að færa sig á hefðbundin herbergi þar sem þeir mega hrjóta eins og þeir vilja.

Að mati ritstjórnar Fararheill.is er þarna verið að gera úlfalda úr mýflugu. Vænlegra fyrir hótelkeðjuna að byggja hótel sín með þykkari veggjum til að leysa þetta vandamál.

Þess utan er þetta kjörleið fyrir léttsvæfa kerlu að plata hrotukarl sinn svo um munar. Bóka í rólegu álmunni án þess að segja karli og láta henda honum annað þegar hroturnar ætla allt að drepa 😉