Úff. Eins og það hefði verið næs að vera í sóttkví á sólríkum svölum í Malaga eða á Kanaríeyjum fremur en staulast um kotið hér heima. Sú von er líkast til að verða að engu því fregnir herma að spænsk stjórnvöld ætli að setja í lás og slá strax á mánudaginn kemur.

Sóttkví hljómar töluvert betur á svölum undir spænskri sól en hér á klakanum.

Stjórnvöld hafa enn ekki upplýst opinberlega um málið en samkvæmt spænskum miðlum hefur náðst samkomulag um að loka flestu og takmarka allar ferðir um landið allt og mun það taka gildi næstu dagana. Fólki verður heimilt að sækja vinnu og kaupa í matinn og þá er það upptalið. Að öðru leyti skal lýðurinn halda sig heimavið.

Ástæða þessa auðvitað sú að kórónatilfelli á Spáni hafa margfaldast á skömmum tíma. Þegar eru tíu borgir/bæir alfarið lokaðir vegna sóttkvíar, velflestir barir og veitingastaðir á helstu ferðamannastöðum dregið fyrir og ferðaviðvaranir í gildi til Spánar frá minnst sex öðrum ríkjum.

Ekki er ljóst af fyrstu fregnum að dæma hvort lokað verður á erlent ferðafólk en líkurnar þykja meiri en minni. Jafnvel þó að ferðamönnum verði áfram heimilt að heimsækja Spán verður það heldur þunnur þrettándi enda ekkert opið og hvergi má þvælast um. Þá betur heima setið.