Ólíkt utanríkisráðuneytinu hér heimavið fylgjast þau ráðuneyti erlendis vel með þróun mála hvað kórónafaraldurinn varðar. Bretar hafa nú varað formlega við ferðum til tiltekinna staða á Spáni.

Tómlegt á Plaza Mayor í Madríd. Svo verður áfram vegna sóttvarnaraðgerða.

Það mun vera í fyrsta skipti sem það gerist en viðvörunin gildir um höfuðborgina Madríd, vínhéraðið La Rioja, La Bastida í Baskalandi og Vitoria-Gasteiz. Á öllum þessum stöðum hefur orðið sprenging í fjölda sýktra af covid-19 vírusnum.

Ekki svo að skilja að heimsókn í spænsku höfuðborgina sé heillandi þessa stundina. Þar er meira og minna allt lokað nema apótek og sjúkrahús. Öll söfn harðlokuð og meira að segja barir og veitingahús að mestu leyti líka.