Makalaust má heita að þetta sé að koma fram fyrst núna en tvö af stærstu skemmtisiglingafyrirtækjum heims hafa sett allar ferðir á ís í 60 daga hið minnsta. Ástæðan vitaskuld covid-19 faraldurinn.

Engir túrar með skipum Princess Cruises næstu vikurnar hið minnsta. Mynd Princess Cruises
Líklega þarf fólk sem dreymir um lúxussiglingu á tíma sem þessum að fara í alvarlega heilaskoðun. Þarf vart annað en einn farþegi hósti til að allt fari á annan endann í siglingu og ef sýking kemur upp er alls óvíst að dallurinn fái að leggjast að nokkurs staðar.
Það því ósköp eðlilegt að tvö af stærstu skemmtisiglingafyrirtækjum heims, Princess Cruises og Viking Cruises, hafi sett ALLAR ferðir á ís í bili. Viking aflýsir öllum siglingum til 30. apríl til að byrja með og Princess slúttar öllum túrum í 60 daga.
Æði líklegt má telja að önnur stærri fyrirtæki í sama bransa fylgi þessum fordæmum fljótlega. Sala ferða steindauð og ekkert bendir til annars en kórónafaraldurinn eigi nóg eftir ennþá.







