Bogi Nils segir markmið félagsins (Icelandair Group) skýrt, að bæta arðsemi og rekstur félagsins til framtíðar.

Forstjóra Icelandair virðist ganga illa að koma fyrirtækinu í plús. Mynd Icelandair
Hjúkketíhjúkk. Forstjóri Icelandair greinilega með hlutina á tæru hjá fyrirtæki sínu. Skýr framtíðarsýn og ekkert jamm, japl og fuður.
Nema hvað að ummælin hér að ofan eru höfð eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í febrúar 2019.
Hmmm!
Nú kemur tilkynning frá flugfélaginu um 7,1 MILLJARÐS KRÓNA TAP á árinu 2019. Fyrirtækið tapaði hálfum milljarði króna meira á nýliðnu ári en árið 2018.
Ókei! Eitt og annað forvitnilegt við þessa niðurstöðu Icelandair. Í fyrsta lagi sú staðreynd að flugfélagið var án stórra samkeppnisaðila meginhluta síðasta árs ólíkt því sem var árið 2018. Í öðru lagi sú staðreynd að stórum hluta skrifstofustarfa Icelandair var útvistað til fátækari landa snemma á síðasta ári til að ekki þyrfti að greiða íslensku starfsfólki íslensk laun. Í þriðja lagi losaði Icelandair sig við tonn af hótelum og drasli á árinu og í fjórða lagi kennir forstjórinn Boeing Max veseninu um tap ársins en hvergi hefur annað komið fram en að Boeing sé boðið og búið að greiða bætur vegna tekjumissis þeirra flugfélaga sem eiga Max-vélar á lager.
Má af þessu ráða að Boeing er engan veginn að fallast á kröfur Icelandair um bætur sem er stórfrétt út af fyrir sig og enginn erlendur fjölmiðill hefur greint frá slíku okkur vitandi. Þvert á móti eru Bandaríkjamennirnir að gera allt til að bjarga því sem bjargað verður og það með feitum bótum til helstu viðskiptavina. En kannski er Icelandair að ýkja tap sitt og spekingar Boeing ekki alveg að kaupa staðhæfingar Íslendinganna.
Því hvernig er hægt að kenna Boeing um sjö milljarða króna tap árið 2019 ef þeir bandarísku eru raunverulega að bæta flugfélögum upp hugsanlegt tap af því að Max-vélarnar hafa verið kyrrsettar mánuðum saman?
Þetta gruggugt vatn og óvitlaust ef einhver fjölmiðill með aðgang að forráðamönnum Icelandair fengi skýringar. Hin skýringin er svo sú, sem við höfum haldið fram lengi, að forstjóri Icelandair sé excel-kall sem viti ekkert hvað hann er að gera.







