Middelfart á Fjóni er án vafa eitt fyndnasta nafn í Danaveldi. En þrátt fyrir kúnstugt nafnið er þetta sérdeilis fínn staður til að vera á næsta júlí. Nánar tiltekið undir Stórabeltisbrúnni. Þar fara fram, að Hróarskelduhátíðinni frátalinni, stærstu tónleikar þessa árs.

Middelfart er málið 🙂

Við Strandvej í hinni fimmtán þúsund manna borg Middelfart hefur farið fram undanfarin 30 ár hátíðin Rokkað undir brúnni eða Rock under broen á máli frumbyggja. Þar gott að vera og njóta eins og jafnan í gamla heimalandinu. Sú hátíð þó þeim annmörkuð háð að þar koma næsta aðeins fram danskir tónlistarmenn. Ekki slæmt per se en sjaldan listamenn sem Íslendingar kunna nokkur deili á.

Það breytist nú því það er aukaviðburður á Rock under broen þessa vertíðina. Nánar tiltekið þann 21. júlí þegar stórveitin Aerosmith stígur á stokk undir brúnni og tryllir lýðinn. Ritstjórn þarf varla að tíunda afrek Aerosmith á tónlistarsviðinu undanfarna áratugi en rokksveitin atarna hefur selt fleiri plötur en nokkur önnur rokksveit í veraldarsögunni.

Enn til miðar á viðburðinn og miðaverð kringum þrettán þúsund krónur þegar þetta er skrifað. Margt verra sem hægt er að gera við peningana…