Aldrei gaman að hlaupa út að leika og finna svo engan sem vill leika. Það virðist vera raunin hjá forsvarsmönnum Play ef marka má fregnir dagsins.

Blikur á lofti með flugfélagið Play.

Skammt stórra högga milli. Í byrjun mánaðarins blésu forsvarsmenn nýs íslensks lággjaldaflugfélags í blöðrur og dreifðu glimmeri þegar tilkynnt var um stofnun flugfélagsins Play með viðhöfn í Perlunni. Forsvarsmenn héldu svo súperpartí á dýrasta stað landsins.

Mögulega hófst þessi veislan með mjög sterkum fordrykk áður en áfengið og snitturnar voru komnar á staðinn fyrir gestina. Ef marka má fréttir Markaðarins gengur forsvarsmönnum illa að safna nægu fjármagni til að koma rellum á loft um áramótin eins og áætlanir gefa til kynna.

„Samkvæmt heimildum Markaðarins hafa fjárfestar sett sig upp á móti því að stofnendur Play eignist svo stóran hlut í flugfélaginu og þá hafa þeir sett spurningarmerki við flugrekstrarreynslu stjórnendateymisins. Viðskiptaáætlanir félagsins, sem gera meðal annars ráð fyrir því að Play verði strax farið að skila um 70 milljóna hagnaði á fyrsta fjórðungi næsta árs, þykja helst til bjartsýnar og þá hafa fjárfestar kallað eftir því að fenginn verði kjölfestueigandi að flugfélaginu í hlutafjárútboðinu.”

Ofangreint kemur lítt á óvart. Forsvarsmenn nýs flugfélags talað digurbarkalega um að halda öllum kostnaði í lágmarki en halda svo geðveikt partí í dýrasta sal landsins strax og kynningu lauk í  byrjun mánaðarins. Líklega ekki bara við hér á þessum smámiðli sem finnst það skjóta skökku við. Fjárfestar hljóta jú að horfa til gjörða en ekki bara orða þegar nýir aðilar hoppa fram með stórar hugmyndir.

Það hjálpar auðvitað ekki að efnahagsástandið á heimsvísu er á niðurleið ólíkt því sem var þegar Wow Air tók til starfa. Fólk dregur saman í ferðalögum eins og öðru þegar blikur eru á lofti og ekki hjálpar geðveikur maður í Hvíta húsinu vestanhafs og geðveikur maður í Downingstræti 10 austanhafs.

Í öllu falli mega ansi mörg púsl falla á réttan stað vandræðalaust áður en fyrsta rellan á vegum Play fer í loftið frá Leifsstöð.