Heyr, heyr! Engum er lengur heimilt að klífa frægasta steindrang Ástralíu. Frumbyggjar Ástralíu, sem telja Uluru heilagan stað, höfðu loks sitt fram.
Uluru er stórmerkilegt fyrirbæri eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Risastór steindrangur í miðri eyðimörk eins og skratti úr sauðalegg. Enda finnst varla stakur steinn annar á þessum slóðum í fleiri hundruð kílómetra radíus.
Sem er auðvitað ástæða þess að frumbyggjar Ástralíu tóku ástfóstri við dranginn fyrir margt löngu og sömuleiðis ástæða þess að ferðafólk veit fátt betra en vitna dranginn og helst klífa hann líka til að njóta útsýnisins og monta sig á samfélagsmiðlum.
En klifur er endanlega úr myndinni. Lokað hefur verið fyrir alla göngu á dranginn og með því viðurkennt það sem frumbyggjar landsins hafa haldið fram um áratugaskeið; að Uluru sé heilagur staður en ekki skemmtigarður fyrir ferðafólk.
Hið besta mál. Staðir sem eru heilagir í hugum fleiri þúsund manns ættu aldrei að verða aðdráttarafl fyrir ferðafólk sem ber þá einu ósk í brjósti að monta sig á samfélagsmiðlum. Nóg er af öðrum príma stöðum í þessu stóra landi til að njóta.







