Flest erum við vön að hugsa um sól og sælu þegar Kanaríeyjar koma upp í hugann. En þennan mánuðinn hefur sólarljós vikið að mestu fyrir hvassviðri og regndembum.

Heiður himinn og sól á kropp? Ekki alveg raunin á Kanaríeyjum þennan mánuðinn. Mynd Díario

Aðeins minna spennandi að fljúga alla leið til Kanaríeyja og fá blástur og bleytu í stað sólar og sælu en það hefur engu að síður verið raunin að mestu þennan mánuðinn. Þá eru veðurspár fram í tímann ekki ýkja spennandi heldur. Varla sést til sólar fyrr eftir viku og þá aðeins glenna og glenna.

Þetta er vitaskuld heldur óvenjulegt fyrir Kanaríeyjarnar sem njóta sólar 318 daga ársins samkvæmt fræðunum og helsta ástæða þess að engum vefmiðli á þessum slóðum er nú flett án þess að veðrið sé frétt númer eitt, tvö og þrjú.

Ekki aðeins lætur sólin lítið sjá sig heldur er hitastigið á eyjunum töluvert undir meðaltalinu þennan mánuðinn. Meðalhitastig í Santa Cruz á Tenerife í nóvembermánuði hefur lengi vel verið milli 18 og 24 gráður. Það sem af er þessum mánuði hefur meðalhitastig verið 14-18 gráður. Það er með ólíkindum mikill munur.

Þess vegna kannski ráð að grípa með örlítið þykkari klæði sé för heitið á þessar slóðirnar á næstunni. Allur er varinn jú góður 😉

Veðrið næstu dægrin í Santa Cruz á Tenerife. Ekki alveg það sem maður býst við. Skjáskot