Það segir sitt um fátækt Kansasfylkis í Bandaríkjunum að það er frægast fyrir nokkrar línur í gamalli kvikmynd; Galdrakarlinn í Oz. Flugfélagið Icelandair ákvað fyrir skömmu að hætta beinu flugi þangað eftir rúmt ár og kemur engum á óvart nema „sérfræðingum” flugfélagsins.

Björgólfur Jóhannesson, fyrrum forstjóri Icelandair. Velflestar hans hugmyndir hafa reynst prump út í eitt. Mynd fréttabréf Samtaka atvinnulífsins

Icelandair að endurskoða flugáætlun sína fram í tímann og með tilliti til að þrjár rellur þeirra af Max-gerð eru kyrrsettar um ókunna framtíð er það bæði eðlilegt og gott og blessað. Leiðakerfi flugfélagsins sprungið út síðustu misserin eins og  maður sem stigið hefur á jarðsprengju. Nánast eins og sérfræðingar flugfélagsins ákveði næstu áfangastaði með pílukasti á barnum á árshátíðinni.

Við höfðum efasemdir hér um Kansas sem áfangastað á sínum tíma eins og lesa má um hér.  Það mat reynst rétt.

Það sem hins vegar kemur aðeins á óvart er sú staðreynd að Icelandair fékk að lágmarki 50 milljóna króna forgjöf fyrir að ákveða að fljúga beint til Kansas samkvæmt því sem fram kemur á vefmiðlinum Kansascity.com. Tæplega 25 milljóna króna afslátt af lendingargjöldum, rúmlega 30 milljóna króna meðgjöf varðandi auglýsingar og kynningar hvers kyns plús óuppgefna upphæð ef flugleiðin atarna skilaði ekki arði.

Ekta Kaninn. Veita tugmilljónum af skattfé til að freista erlendra flugfélaga sem fara svo lóðbeint í vasa vellauðugra Íslendinga sem gera vel við sig á ársfundum með feitum arðgreiðslum þó reksturinn sé í lamasessi.

PS: kannski óvitlaust hjá Icelandair að kanna ráðningu allt öðruvísi „sérfræðinga” en hingað til…