Þeim fjölgar ört fjölmiðlagreinum um vandræði lággjaldaflugfélagsins Norwegian og flestar á einn veg: fjárhagslegt kraftaverk þarf til ef norska flugfélagið á ekki að deyja drottni sínum. Með það í huga er spurning hversu gáfulegt er að kaupa flug með Norðmönnunum á næstunni.

Forráðamenn Norwegian reyna nú að fresta greiðslum á háum skuldabréfum meðan verið sé að endurskipuleggja reksturinn.

Þegar maður hélt að hlutirnir gætu ekki orðið verri hjá lággjaldaflugfélaginu Norwegian þá verða þeir verri.

Flugfélagið er með gríðarlegar skuldir á bakinu eftir hraðan og mikinn uppgang síðasta áratuginn eða svo. Skuldir sem snarjukust 2016 þegar Norwegian fór að fljúga langflug hingað og þangað um heiminn. Frá þeim tíma hefur flugfélagið aldrei skilað hagnaði heldur þvert á móti blætt peningum.

Ekki nóg með afspyrnu kjánalega útrás lággjaldaflugfélags til jafn fjarlægra staða og Argentínu og Puerto Rico heldur hafa kringumstæður versnað til muna með vandræðum Max-véla Boeing. Norwegian keyrir nánast eingöngu Boeing vélar og þar af töluverður fjöldi véla af gerðinni Max-8 sem voru jarðsettar snemma í vor og ekkert bendir til að þær fari í loftið á næstunni. Norwegian á líka töluvert af Max-9 vélum Boeing en töluverð vandamál hafa verið með hreyfla þeirrar tegundar.

Í þessu ljósi ekki óvænt að þó nýir stjórnendur hafi tekið til hendinni strax í vor bólar lítið á fjárhagslegum viðsnúningi flugfélagsins og framundan er vetur sem er lakasti tími ársins fyrir velflest flugfélög heims.

Fyrr í vikunni óskuðu svo forsvarsmenn Norwegian eftir því að eigendur tugmilljarða króna skuldabréfa á hendur flugfélaginu gæfu tveggja til þriggja ára frest á greiðslum meðan tekið væri fyrir fjárhagslegan niðurganginn.

Óvíst er á þessu stigi hvort skuldabréfaeigendurnir hafa áhuga á slíkum gjörningi en beiðni um slíkt kæmi ekki fram nema að forsvarsmenn Norwegian séu nauðbeygðir til. Það þykir jú ekki góð latína neins staðar að fresta greiðslum á skuldum. Það segir æði margt um slæma stöðu.

Með þetta til hliðsjónar má spyrja sig hvort það sé gáfulegt að kaupa flug með Norwegian á næstunni eða fram í tímann. Þeir fjármunir og ferðin sjálf fer forgörðum um leið og flugfélagið fer yfir og líkur á endurgreiðslu minni en engar.

Við hér metum það svo að þrátt fyrir bága stöðu sé Norwegian ekki að leggja upp laupa alveg á næstu mánuðum og það jafnvel þó engin fáist frestun á háum skuldum. Flugfélagið getur vel rekið sig í nokkra mánuði í viðbót án þess að í harðbakkann slái þó ekki sé nema sökum þess að sumarið hefur verið dágott þrátt fyrir allt og Norwegian á örlítið fleiri seðla á bókinni nú en þegar líða fer á veturinn.

Við teljum það í góðu að kaupa flug hjá þeim norsku tvo til þrjá mánuði fram í tímann – og tveir úr ritstjórn eiga einmitt flug með Norwegian fram í nóvember – en sennilega er óráð að bóka flug mikið framyfir næstu áramót. Nema auðvitað að fyrirtækið fái greiðslufrestun frá skuldabréfaeigendum. Þá fær Norwegian andrými vel fram á næsta ár.