Mikið væri óskandi að flugvélaframleiðandinn Boeing færi á hausinn. Þar hafa gráðugir yfirmenn lengi látið hluthafa njóta vafans og hent öryggi og fagmennsku fyrir gróða.

Seint virðast forsvarsmenn Boeing læra nokkurn skapaðan hlut. Mynd JetStar

Einhver gæti haldið að yfirmenn Boeing hafi lært eins og eina litla lexíu á því að þeirra helsta rella, Boeing Max, hefur nú verið jarðsett í hálft ár og ekkert bólar á lausn enda sú lausn ekki til staðar hjá glænýrri rellu sem byggð er á hönnun frá 1960.

En viti menn! Max-rellurnar ekki eina framleiðsla Boeing sem ekki þykir upp á marga fiska.

Svo virðist einnig um Dreamliner rellur Boeing. Þær, ólíkt Max-vélunum, eru raunverulega nýleg hönnun miðuð við nýjasta nýtt í tækniheimum. En jafnvel þar kastar Boeing til höndum eins og lesa má um á vef hollenska flugvefsins Luchtvaarniews (en þó aðeins ef þú skilur hollensku.)

Þar kemur fram að flugfélagið KLM er mjög óánægt með þær Dreamliner rellur sem flugfélagið hefur þegar fengið afhentar frá Boeing. Í stað þess að fá afhentar rellur sem eru klárar í flug þurfa flugvirkjar KLM að sýsla ýmislegt með Dreamliner áður en öruggt þykir að þær tolli í loftinu.

Í viðtali við vefmiðilinn kvarta yfirmenn KLM um að vélarnar séu fyrir það fyrsta afhentar langt á eftir áætlun (og það þrátt fyrir að besta söluvél Boeing hafi ekki flogið í hálft ár.) Í öðru lagi hafi KLM fengið afhentar rellur sem voru alls ekki klárar til flugs. Sum sætin um borð hafi verið lauslega fest, ákveðna hluti flugstýringar hafi beinlínis vantað og í tilvikum hafi eldsneytislagnir vélarinnar ekki verið nægilega vel festar.

Fagmennska út í eitt hjá þessu bandaríska fyrirtæki…