Hmm. Sex gráður og hálfskýjað í höfuðborg Frakklands?

Fyrir utan að segja upp fjölda Íslendinga og senda bókhaldsdeildina eins og hún leggur sig til Austur-Evrópu er Icelandair að gera fleira vitlaust.

Icelandair dálítið eins og Boeing í Bandaríkjunum. Þar fá hagsmunir hluthafa öllu ráðið á kostnað viðskiptavina. Hugmyndin er að spara og spara svo fjárfestar fái nú feitan arð.

Enn hluti af þeim pakka er sennilega að eiga viðskipti við afar ódýra vefmiðla sem veita hinar og þessar upplýsingar. Til dæmis veðurupplýsingar.

Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti; teknu klukkan 17.45 þann 22. ágúst er hitastig í París nánast við frostmark. Aðeins sex gráður í frönsku höfuðborginni!!!

Raunin er hins vegar að hitastig í borg ástarinnar þegar þetta er skrifað er hvorki meira né lægra en 25 gráður og þar glampandi sól en ekki hálfskýjað samkvæmt google.

Sem segir okkur að upplýsingar á vef Icelandair eru nú ekki alls kostar til að reiða sig á…