Ahhhhhh! Malasía á kjörtíma og það á brandaraverði.

Ljúf og heit er Malasía í janúar og febrúar og akkurat þá komumst við alla leið þangað fyrir klink og ingenting.
Janúar, febrúar og mars á Íslandinu góða fara sjaldan í sögubækur fyrir merkilegheit. Kuldi og trekkur skekur mann og annan þann tíma og landinn almennt með munnangur, gigt og hortugheit.
En viti menn! Það er lausn á þeim leiðindunum.
Til dæmis sú lausn að skottast til Köben í byrjun næsta árs og bóka þaðan flugtúr með hollenska flugfélaginu KLM alla leiðina til Malasíu og heim aftur fyrir svo lítið sem 40 þúsund krónur eins og sjá má hér til hliðar.
Jú, víst þarf að sætta sig við stopp í Amsterdam til og frá en verðið er hreinn brandari út í eitt. Tæplega 40 þúsund krónur fram og aftur plús flugið til Köben og heim aftur. Seinna flugið má finna án farangurs á 20 þúsund kall þegar þetta er skrifað.
Ergo: Þú kemst alla leið í sól og yl í hjarta Malasíu á leiðinlegasta tíma ársins fyrir 50 til 60 þúsund kall á kjaft ef þú bregst við núna. Það er töluvert lægra verð en þú greiðir með ferðaskrifstofu til Spánar á sama tíma…







