Þá loks tók einhver af skarið. Amnesty International hefur nú gefið út formlega ferðaviðvörun til þeirra sem ætla að sækja Bandaríkin heim á næstunni.

Boston er vinsæll áfangastaður Íslendinga. Þangað er kannski ekki svo öruggt að fara lengur…

Tími til kominn að okkar viti. Ófáir staðir á hnettinum þar sem þú getur fengið kúlu í brjóst sísona án þess að vita í þennan heim né annan.

Tilefnislausar skotárásir í Bandaríkjunum eru algengari þessi dægrin en mý á mykjuskán og kemur engum á óvart sem hefur lagt eyru við það sem viti skertur forseti landsins hefur haft fram að færa síðustu tvö árin.

Sem merkir að þú á dúlleríi á ströndinni í Flórída getur vel verið skotmark einhvers manns eða konu sem er viti sínu fjarri og hefur aðgang að alvarlegum skotvopnum.

Full ástæða til að taka undir með Amnesty International. Best að sleppa ferðum vestur um haf meðan þetta megafífl er forseti landsins.