H mmm. Þú nýgenginn um borð í rellu á leið út í heim og í bullandi pissuspreng. Þú flýtir þér að finna sætið þitt og ferð svo rakleitt á klósettið til að létta á blöðrunni. En þú ert svo vitlaus að halda að klósettaðstaða finnist á væng þotunnar, opnar neyðardyr, gengur örna þinna á vænginn og veldur sjö klukkustunda seinkun sísona.

Ekki allir ganga heilir til skógar í hausnum…
Hljómar fáránlega ekki satt. Engu að síður nákvæmlega það sem átti sér stað seint á síðasta ári þegar farþegi í flugi Pakistani International Airline frá Manchester í Bretlandi til Pakistan opnaði neyðarútgang til að ganga örna sinna rétt fyrir brottför. Það kostaði SJÖ KLUKKUSTUNDA TÖF.
Amms. Ekki allir sem ganga jafn heilir til skógar í heilastarfsemi og hér ekki verið að gera lítið úr þroskaheftum eða vangefnum. Þvert á móti var hér um að ræða ósköp „eðlilega” meðalmanneskju með greindarvísitölu á við gamla glóperu.
Með því að opna neyðarútgang og æða út olli viðkomandi aðili, í sínum húrrandi pissuspreng, því að neyðaráætlun flugfélagsins var virkjuð. Sem þýðir að húrra öllum frá borði í hvínandi hvelli og fá teymi sérfræðinga til að meta hættuna. Að því loknu þurfti svo annað teymi sérfræðinga til að koma neyðarhurð fyrir á nýjan leik svo rellan væri loftþétt þegar tekið var á loft.
Viðkomandi einstaklingur beint í steininn fyrir heimskulegheit og fékk feita sekt fyrir uppátækið. Sumt fólk…







