Allt við sama heygarðshornið hjá Icelandair. Fögur orð og flottar auglýsingar en þegar á hólm er komið stendur ekki steinn yfir steini.
Sem stemmir 100 prósent við niðurskurð og aðhald sem er sú leið sem forráðamenn hafa ákveðið undanfarin misseri. Hlutafjáreigendur brosa út í eitt þegar aðhald er strangara en í Landakotsskóla á síðustu öld. Það merkir að fleiri seðlar detta inn um lúguna þegar stjórn kemur saman til að útdeila hagnaðinum.
Eða hvað?
Icelandair varð þess „heiðurs” aðnjótandi fyrr í þessum mánuði að detta niður í fimm stjörnur af tíu mögulegum hjá Skytrax en það fyrirtæki heldur utan um sannreyndar umsagnir um ferðaþjónustuaðila og flugfélög. Icelandair var í sjö stjörnum þegar litli Fararheill hóf göngu sína árið 2009, datt snemma árs 2012 niður í sex stjörnur og stærir sig nú af fimm stjörnum. Sem sagt: algjör meðalmennska í einu og öllu.
Meðalmennska er ekki eitthvað sem selur feitt á þeim mikla samkeppnismarkaði sem flugið er. Þvert á móti þá þurfa flugfélög sem heimta feitari seðla en lággjaldaflugfélögin fyrir túrana að bjóða upp á eitthvað extra. Að frátöldum fimmtán ára gömlum sætisskjám í tuttugu ára gömlum vélum er ekkert extra að fá hjá Icelandair umfram flug með Vueling, easyJet eða Wizz Air. Sem er fínt mál ef Icelandair dreymir um að vera lággjaldaflugfélag en fargjöld flugfélagsins bera þess engin merki.
Þetta aftur merkir að flugfélagið mun aldrei ná vopnum sínum alvarlega aftur ef að þjónusta við viðskiptavininn mætir skitnum afgangi. Jú, þjónusta kostar peninga en Icelandair hefur ekki efni á öðru en bjóða slíkt ef það vill ekki láta kalla sig lágfargjaldaflugfélag. Því það er ekki auðveldlega komist af botninum ef fyrirtæki lendir á annað borð í fallbaráttu.
Stjórnarmönnum Icelandair frjálst að hringja í okkur hér ef ykkur dettur í hug að henda núverandi forstjóra á haugana. Hann ekki beint að gera stórkostlega hluti…







