Í febrúar á þessu ári flugum við til Barselóna, þaðan til Madríd og frá Madríd til Sevilla áður en við rúlluðum okkur til Valensíu. Allt með flugi og heildarkostnaður við ofangreindan túr án farangurs heilar 24 þúsund krónur alls eða tómt djók á íslensku. Nú gefst tækifæri að gera svipaðan hlut í Bandaríkjunum.
Trixið, ef þú vilt þvælast vítt og breitt um stærri lönd heims er að brúka lággjaldaflugfélög og helst brúka þau með sæmilegum fyrirvara. Eða hvernig hljómar að fljúga frá Denver í Kolóradó til Austin í Texas eða frá Orlandó í Flórída til Portland á vesturströndinni án farangurs á þrjú til fimm þúsund krónur?
Slík fargjöld eru sannarlega kostuleg og þau eru sannarlega í boði á vef flugfélagsins Frontier vestanhafs. En aðeins ef þú bókar strax eins og sjá má á vef flugfélagsins hér.
Þjóðráð fyrir þá sem vilja þvælast um vestanhafs án þess að aka bíltík þvers og kruss.







