Viti menn! Þrátt fyrir töluvert skítkast í bandarískum fjölmiðlum á flugmenn Boeing Max 8 vélar Ethiopian Air sem hrapaði til jarðar með hörmulegum afleiðingum fyrir tæpum mánuði, kemur í ljós við rannsókn að flugmennirnir fóru í einu og öllu eftir ráðleggingum Boeing.

Fóru að öllu eftir ráðleggingum Boeing en það dugði skammt. Skjáskot NDTV

Tvær vikur eru síðan fjölmargir bandarískir fjölmiðlar og aðrir fjölmiðlar í kjölfarið, vitnuðu í ónafngreindan aðila sem staðhæfði að flugmenn Ethiopan Air hefðu alls ekki fengið neina þjálfun vegna MCAS tölvubúnaðs Boeing-vélanna. Það er búnaður sem gerir tölvu kleift að taka yfir stjórn þotu á flugi ef skynjar meta það svo að vélin sé við það að ofrísa í flugi.

Þvert á móti hefðu flugmennirnir barasta alls ekki fengið einn einasta flugtíma í þjálfun á vélarnar yfir höfuð. Slysið væri því vankunnáttu um að kenna. Sumir fjölmiðlar svo borubrattir að benda á að bæði slys Boeing Max véla væru einfaldlega afleiðing af þriðja heims aðstæðum þar sem eftirlit væri í mýflugumynd.

Alas, ekki var það svo raunin.

Í það minnsta kemur fram í bráðabrigðaskýrslu vegna slyssins að ekki aðeins voru báðir flugmenn Ethiopian með reynslu af Max 8 þotum Boeing heldur og höfðu fengið og kynnt sér varrúðarráðstafanir Boeing í þaula. Enda kemur á daginn að þeir fóru 100 prósent eftir ráðleggingum þotuframleiðandans þegar rellan fór að hegða sér undarlega við flugtak frá Addis Ababa.

Í ljós kemur reyndar að orsökin virðist hafa verið bilaður skynjari utan á vélinni sem gaf tölvukerfinu rangar upplýsingar sem svo aftur tók völdin af flugmönnunum. Með öðrum orðum; nákvæmlega sama vandamál og virðist hafa komið upp þegar Boeing Max vél Lion Air brotlendi í Indónesíu fyrr í vetur.

Vandamál Boeing er því ekki vankunnátta flugmanna eins og fyrirtækið gaf til kynna heldur tæknilegs eðlis.

Hugsa sér að Icelandair hafi flogið Max-rellum sínum áfram í lengstu lög og á sama tíma haldið því fram að öryggi farþega og áhafna væri númer eitt, tvö og þrjú…