Þó Mogensen og hans fólk hjá Wow Air beri ekki sitt barr lengur er ekki þar með sagt að okkur gefist ekki dauðafæri að komast billega til ljúfra erlendra borga. Borga á borð við Vín í Austurríki.

Ekki bara Pólland á góðu verði héðan með Wizz Air.

Margir vita að lággjaldaflugfélagið Wizz Air hefur verið að gera gott mót héðan síðustu misserin til flottra borga í austurhluta Evrópu. Færri vita að Wizz býður líka beint flug héðan til Vínarborgar og það á sérdeilis safaríku verði eða allt niður í átján þúsund krónur fram og aftur.

Það er príma stöff á hvaða tungumáli sem er enda Vín ein mesta heimsborg Evrópu og ef þér leiðist þar skaltu bara halda þig við að safna frímerkjum og læra Esperanto heimavið.

Vitaskuld er það fargjald í sardínufarrými og ekkert innifalið nema handfarangur en jafnvel þó fólk pungi út fyrir töskudruslu fram og aftur er samt hægt að dúllast þá leiðina ódýrast fyrir rétt rúmlega tuttugu þúsund krónur ef bókað er með sæmilegum fyrirvara.

Það er brilljant verð á ferð ef þú spyrð okkur hér 🙂