Úfffff!!! Illa launað verslunarfólk sem ætlar á eftirlaun á næstu misserum og árum gæti fengið fyrir hjartað mun fyrr en ráð var gert fyrir. Lífeyrissjóðsgreiðslurnar verða töluvert lægri en fólki var talin trú um.

Milljarðamæringar landsins virðast ófærir um að sannfæra fjárfesta um að þeir séu sjittið.
Það helgast af því að langstærsti eigandi Icelandair er Lífeyrissjóður verslunarmanna með tæplega 14% hlut. Lífeyrissjóðir Gildis, Birtu og ríkisstarfsmanna eiga líka saman rúm 20 prósent að auki. Þá aðeins örfáir taldir af þeim lífeyrissjóðum landsmanna sem eiga stóra hluti í þessu fyrirtæki sem rekið er af milljarðamæringum.
Sá rekstur milljarðamæringanna gengur hins vegar ekki ýkja vel enda þeir ekki vanir samkeppni. Þennan daginn fóru bréf Icelandair vel undir sjö krónur per hlut og stóðu í 6.93 í lok dagsins. Það dálítið langt frá stöðunni vorið 2016 þegar eitt stykki bréf í félaginu kostaði 39 krónur tæpar. Það þarf reyndar að leita aftur til ágústmánaðar 2012 til að finna sambærilega stöðu á bréfum Icelandair. Sem sagt áður en hingað flykktust milljónir ferðamanna…

Gengi hlutabréfa Icelandair síðustu sex árin. Varð ferðamannasprengja hérlendis?
Og ekki heyrist múkk í lífeyrissjóðum eða umbjóðendum þeirra. Hvað þá að lífeyrissjóðirnir reyni að selja handónýt bréfin. Neibbs. Látum ellilífeyrisþega landsins taka skellinn.
PS: Óvitlaust fyrir hluthafa í N1 að losa sig við bréf sín eigi síðar en núna. Nýr í stjórn olíufélagsins er nefninlega maðurinn sem öllu réði hjá Icelandair þegar allt fór í handaskol. Bjóðum milljarðamæringinn Björgólf Jóhannsson velkominn til starfa hjá N1. Úpps. Lífeyrissjóður verslunarmanna á risahlut í því svindlfyrirtæki líka…
Fimm þúsund kall að virði bréfa N1 eftir tólf mánuði verður töluvert lægra en það er í dag…







